Blogg

12.2.2010

Nýtt blogg


Ég var að stofna enn eitt nýja bloggið, að þessu sinni á wordpress. Tilgangur þess er hreinræktuð yfirtaka á mímisbrunnssíðunni. Þangað mun ég færa allt gamla efnið og bæta nýju við. Stutt efni og það sem tengist ekki trúarbrögðum beint mun verða sett hingað inn, en sögur og svoleiðis fer allt á nýju síðuna. Það er sko verið að vinna í mörgu sniðugu sem ekki hefur áður sést í nútímalegri og/eða íslenskri uppfærslu.


Slóðin er: http://viskustykki.wordpress.com/

Einhverntíman við gott tækifæri verður svo haldið áfram með greina-þýðingarnar sem áttu að birtast hér en hafa því miður verið alltof lengi í vinnslu.

Skrifað 12.2.2010 kl. 16:16 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.2.2010

Þetta eru víst geimvísindi!


Skemmtilegt og fróðlegt en samt svoldið þreytandi viðtal

kemur inná allt þetta góða einsog Stargate og geimverur, brelluuppákomur og svoleiðis.

Og jámm, mér finnst heldur ekki ólíklegt að 2010 verði árið sem "we make first contact" (ég segi bara svona afþví að það passar við myndina sem ég linkaði á því að raunverulegt samneiti við hulduverur byrjaði að sjálfsögðu fyrir löngu og þá er ekkert endilega um að ræða geimverur, heldur bara ýmislegt úr öðrum víddum sem átti það til að setja sig á háan hest og þykjast vera eitthvað merkilegra en við - og við höfum líka verið að spjalla við óbreytt huldufólk í mörg þúsund ár, þannig að þetta er ekkert nýtt, en verður látið líta þannig út)

Ég ætla annars bara að fara að koma mér í rúmið því ég þarf nauðsynlega að klára eina leiðinlegustu bók sem ég hef lesið áður en sendingin mín kemur frá amazon. Þessi bók heitir jaðiaugað og ég mæli EKKI með henni, hélt að þetta væri spennusaga en svo er ekki. Fornaldarsögur Norðurlanda eru miklu ákjósanlegra lesefni ef óskað er eftir spennu.

Skrifað 1.2.2010 kl. 22:41 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.1.2010

Smá (mikil) speki




Skrifað 29.1.2010 kl. 18:42 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.1.2010

Alveg klikk


Ég veit nú ekki hversu mikið er að marka svona lagað þarsem maður á að geta hjálpað öðrum lífverum án þess að þurfa svo mikið sem yfirgefa þægindin fyrir framan tölvuskjáinn sinn (og meiraðsegja án þess að fara inná heimabankann og millifæra summur) en ég prufaði þetta klikkdæmi sjálf í kvöld og ímynda mér að með því að klikka smávegis þá sé eitthvað pínupons verið að hjálpa úlfum, haitibúum og ýmsu öðru... Þetta er of auðvelt til að virka ekki, eða hvað?

http://www.care2.com/click-to-donate/

Annars var ég að finna alveg stórkostlega (ég endurtek STÓRKOSTLEGA) bók á netinu áðan og er að byrja á henni, maður finnur strax hvað hún er góð - þetta er eitthvað fornt latínurit og ég vildi gjarnan geta fullyrt að ég muni einhverntímann þýða það (amk smá, t.d byrjunina) en ætli það sé ekki best að fullyrða sem minnst um allt slíkt, hehumm, miðað við minn feril sem yfirlýsingaglaður þýðandi á þessari síðu. En ég nýt mín þó amk við að lesa núna, bæði þessa bók og hana Auði (djúpúðgu) sem ég fékk í jólagjöf. Og Ólafs sögu Tryggvasonar, Heimskringla er líka á náttborðinu og hún er skemmtileg, þó að allir í henni heiti Haraldur eða Ólafur!!!

Skrifað 21.1.2010 kl. 0:12 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.1.2010

Snilld :)


Er þat ok margra heimskra manna náttúra, at þeir trúa því einu, er þeir sjá sínum augum eða heyra sínum eyrum,
er þeim þykkir fjarlægt sinni náttúru, svá sem orðit hefir um vitra manna ráðagerðir eða mikit afl eða frábæran léttleika fyrirmanna, svá ok eigi síðr um konstir eða huklaraskap ok mikla fjölkynngi, þá þeir seiddu at sumum mönnum ævinliga ógæfu eða aldrtila, en sumum veraldar virðing, fjár ok metnaðar.


Skrifað 10.1.2010 kl. 20:09 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.1.2010

Ein góð saga


Ég er að lesa gamla ritgerð eftir Max Muller sem fjallar um það hvernig sagnaminni færast heimshorna á milli og byggja oft á ævafornum grunni einhversstaðar langt í burtu. Sagan sem hann notast aðallega við til að sýna fram á þetta merkilega ferli er um stúlku sem fer á markaðinn til að selja mjólk en hún missir mjólkina sína í götuna vegna dagdrauma sinna um það sem hún getur keypt fyrir mjólkina. Sú dæmisaga er til (í ýmsum myndum) um víða veröld og Max leitaði m.a að henni í Panka Tantra sögusafninu mikla og gamla frá Indlandi. En hann fann hana ekki þar, heldur bara þessa hér, sem er eiginlega miklu betri og fyndnari.

Einu sinni var uppi Brahmani nokkur sem hét Svabhavakripana, sem merkir "fæddur nirfill". Hann hafði safnað sér þónokkrum forða af hrísgrjónum með því að betla, og þegar hann hafði fóðrað sig vel af þeim þá fyllti hann annan pott með því sem varð afgangs. Hann hengdi pottinn uppá vegg og lét sessuna sína þar undir, og alla nóttina sat hann þarna og starði á hrísgrjónapottinn og hugsaði með sér: "Ah, þessi pottur er vissulega barmafullur af hrísgrjónum. Ef það skyldi nú koma hungursneið, þá mun ég græða hundrað rúpíur á þeim. Fyrir peningana mun ég kaupa nokkrar geitur. Þær munu eignast kið á sex mánaða fresti og fljótlega eignast ég þá heila geitahjörð. Fyrir geiturnar mun ég svo kaupa kýr. Um leið og þær hafa eignast kálfa sel ég kálfana. Og fyrir kýrnar kaupi ég buffalóa og fyrir þá kaupi ég hryssur. Þegar hryssurnar hafa eignast folöld mun ég eiga helling af hestum og með því að selja þá eignast ég helling af gulli. Fyrir gullið get ég keypt mér hús með fjórum álmum. Og þá mun Brahmani koma í heimsókn í húsið mitt og bjóða mér sína fallegustu dóttur fyrir eiginkonu, ásamt risa heimanmundi. Hún mun eignast son og hann mun ég kalla Somasarman. Þegar hann er orðinn nógu gamall til að vera vaggað á hné föður síns þá mun ég sitja með bók nokkra aftast í hesthúsinu og á meðan ég er að lesa mun sonur minn sjá mig og hoppa upp af hné móður sinnar og hlaupa til mín til þess að verða vaggað á mínu hné. Hann mun þá vera alltof nærri hófum hestanna og við það fyllist ég af reiði og kalla til konu minnar: "Taktu barnið, taktu það!" En hún heyrir ekki til mín þarsem hún verður upptekin við eitthvað heimilisstúss. Og þá stend ég sko upp og gef henni duglegt spark með fæti mínum." Á meðan hann hugsaði þetta þá sparkaði hann ósjálfrátt með fætinum og braut pottinn. Öll hrísgrjónin hrundu yfir hann og gerðu hann allan hvítan. Þessvegna segi ég: "Sá sem gerir heimskuleg plön fyrir framtíðina mun allur hvítna, alveg einsog pabbi hans Somasarman."

Skrifað 9.1.2010 kl. 21:01 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.12.2009

Heilræðavísur - eftir Hallgrím Pétursson


Ungum er það allra best
að óttast Guð, sinn herra,
þeim mun viskan veitast mest
og virðing aldrei þverra.

Hafðu hvorki háð né spott,
hugsa um ræðu mína,
elska Guð og gerðu gott,
geym vel æru þína.

Foreldrum þínum þéna af dyggð,
það má gæfu veita,
varast þeim að veita styggð,
viljirðu gott barn heita.

Hugsa um það helst og fremst,
sem heiðurinn má næra;
aldrei sá til æru kemst.
sem ekkert gott vill læra.

Lærður er í lyndi glaður,
lof ber hann hjá þjóðum,
hinn er ei nema hálfur maður,
sem hafnar siðum góðum.

Oft er sá í orðum nýtur,
sem iðkar menntun kæra,
en þursinn heimskur þegja hlýtur,
sem þrjóskast við að læra.

Vertu dyggur, trúr og tryggur,
tungu geymdu þína,
við engan styggur né í orðum hryggur,
athuga ræðu mína.

Lítillátur, ljúfur og kátur ,
leik þér ei úr máta;
varast spjátur, hæðni, hlátur,
heimskir menn sig státa.

Víst ávallt þeim vana halt:
Vinna, lesa, iðja;
umfram allt þó ætíð skalt
elska Guð og biðja.

Skrifað 15.12.2009 kl. 22:16 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.12.2009

Smá MKS


Það er óhjákvæmilegt að af jákvæðum, uppbyggilegum og óeigingjörnum hugsunum stafi annað en langvinn áhrif til góðs. Endurgjald er lykilnótan í alheiminum. Náttúran sér stöðugt til þess að jafnvægi sé viðhaldið. Þegar eitthvað er sent út þá verður eitthvað að koma í þess stað; annars skapast tómarúm.


10. Kraftur athyglinnar kallast einbeiting; þeim krafti er stjórnað af viljanum; þessvegna verðum við að neita okkur um að einbeita okkur að öðru en því sem við þráum. Margir eru stanslaust með hugann við sorg, missi og ringulreið af einhverju tagi; en þarsem hugsun er skapandi þá fylgir óhjákvæmilega í kjölfarið að slík einbeiting leiðir til enn frekari missis, meiri sorgar og meiri ringulreiðar. Hvernig mætti það öðruvísi vera? Á hinn bóginn er það svo að þegar við öðlumst velgengni, gróða eða einhverjar aðrar eftirsóknarverðar kringumstæður þá einbeitum við okkur eðlilega að áhrifum þeirra og þar af leiðandi sköpum við meira af þeim, og eftir fylgir að mikið leiðir af sér meira.

(þetta er tekið úr mks kafla 23)

Skrifað 9.12.2009 kl. 22:32 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.12.2009

Smá kristileg næsheit


Síraksbók er æðislegt viskurit og ein af apókrýfubókum Biblíunnar.

Hérna er fyrsti kafli hennar, í allri sinni dýrð ;)

Öll speki er frá Drottni,
hjá honum er hún að eilífu.
Hver fær talið sandkorn á sjávarströndu,
dropa regns eða daga eilífðar?
Hver fær kannað hæði himins, víðáttu jarðar,
undirdjúpin eða spekina?
Fyrri öllu var spekin sköpuð,
frá eilífu voru skilningur og hyggindi.
Orð Guðs í upphæðum eru lind spekinnar,
eilíf boð hans vegir hennar.
Hverjum opinberaðist upphaf spekinnar?
Hver komst fyrir hulin rök hennar?
Hverjum opinberaðist þekking á spekinni
og hver hlaut skilning á allri reynslu hennar?
Drottinn einn er spakur, ógurlegur mjög,
situr í hásæti sínu.
Hann er sá sem spekina skóp,
leit á hana og virti vel
og veitti henni yfir öll sín verk,
Allt sem lifir fékk hlutdeild í þeirri gjöf hans,
hann veitir þeim sem elska hann ríkulega af henni.
Að óttast Drottin er heiður og vegsemd,
gleði og fagnaðarsveigur.
Að óttast Drottinn fyllir hjartað fögnuði,
veitir ánægju, gleði og langlífi.
Sá sem óttast Drottin mun hljóta sælan endi,
njóta blessunar á banadægri.

Upphaf spekinnar er að óttast Drottin.
Hún er ásköpuð hinum trúföstu þegar í móðurlífi.
Hjá mönnum hefur hún gert sér bústað,
grundvallaðan að eilífu,
niðjar þeirra munu treysta á hana.
Nægtir speki er að óttast Drottin,
hún seður menn með aldinum sínum.
Hús þeirra allt fyllir hún lostæti,
forðabúrin afurðum sínum.
Kóróna spekinnar er að óttast Drottin,
hún ber blóm friðar og fullrar heilsu.
Drottinn horfði á spekina og mat hana mikils.
Hún lætur þekkingu og innsæi falla sem regn,
eflir vegsemd þeirra sem höndla hana.
Rót spekinnar er að óttast Drottin,
greinar hennar eru langlífi.
Guðsótti hrekur syndir á braut
og þar sem hann er að finna víkur reiðin frá.

Óréttmæt reiði á engar málsbætur,
hömlulaus heift leiðir manninn til falls.
Þolinmóður þreyr til hentugs tíma
og honum hlotnast gleði um síðir.
Orðvar er hann uns tími er til,
þá hljóta hyggindi hans lof af mörgum.

Spekin býr yfir fjársjóðum spakmæla
en guðhræðsla er syndurum viðurstyggð.
Ef þú þráir speki skaltu halda boðorðin,
þá mun Drottinn veita þér gnótt hennar.
Speki og menntun er að óttast Drottin,
gakk ei fram fyrir hann með svik í hjarta.
Hræsna þú eigi fyrir mönnum
og haf gát á vörum þínum.
Hreyk þér eigi upp svo að þú fallir
og leiðir vanvirðu yfir þig.
Drottinn mun leiða það í ljós sem þú felur hið innra
og auðmýkja þig í augsýn safnaðarins.
Þú gekkst eigi fram í ótta Drottins,
hjarta þitt var fullt svika.



Ég þekki svo marga sem halda að guðsótti sé eitthvað slæmt, og skilja ekki að í honum felst lykillinn að allri blessun. T.d (alvöru) ríkidæmi og vellíðan. En líka svo mörgu öðru. Það er ekki hægt að öðlast frið hið innra nema með því að lifa fyrir Guð, en ekki sjálfið.

Síraksbók er uppfull af spakmælum sem borgar sig að hlýða á. Það eru ákveðin andleg lögmál í gangi í þessum heimi sem eru eins áreiðanleg og raunveruleg einsog þyngdarlögmálið. Hvað sem efahyggjufólk vill meina, þá er það bara staðreynd að hinn andlegi heimur er áhrifameiri heldur en efnisheimurinn þegar kemur að því sem gerist í lífi okkar. Ég hef aldrei kynnst neinu öðru eftir að ég varð meðvituð um það. Þetta verður fólk að notfæra sér, og leyfa þannig góðum hlutum að gerast. Treystum á innsæið og vernd almættisins, það borgar sig alltaf. Og gerum einsog gyðingarnir, heiðrum Guð og segjum á hverjum degi: "Guð er einn, hann einn er guð." Elskum hann af öllum mætti og allri sálu okkar og þá fáum við að kynnast HINU GÓÐA.

Skrifað 1.12.2009 kl. 20:29 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.11.2009

Lyklar meistarans


Enn og aftur er ekkert uppúr mér að hafa nema bókagagnrýni ;)

Sú bók sem ég er að heillast mest af þessa dagana (fyrir utan the collector sem er allt annars eðlis) heitir The master key system og hún er ein af hinum alræmdu secret-bókum, þ.e.a.s þeim sem voru notaðar til að sjóða saman nútímaboðskapinn um Law of attraction sem kynntur er í myndinni og bókinni um the Secret - sem margir ættu að kannast við. Bækur einsog The Master Key System eru flestar skrifaðar fyrir mörgum áratugum síðan, þegar svona hugmyndir voru mjög vinsælar og aðgengilegar. Það sem þær eiga sameiginlegt (ásamt leyndarmálinu) er að það er gaman að lesa þær, maður fyllist af innri bjartsýni og verður ákveðinn í að ná stjórn á eigin örlögum með skynsamlegri hegðun (og hugsun). Oft vill maður gleyma að halda það út til lengdar, þ.e.a.s hversdagsleikinn yfirtekur mann oft þegar bókin er búin, en það situr samt alltaf eitthvað af þessu eftir, getur maður vonað. Ég ætla að vísa ykkur á þetta snilldarverk, það er hér, ásamt mörgum fleiri gömlum og góðum ritverkum af svipuðum toga, en einnig ætla ég að þýða nokkra góða kafla og vona að þið njótið þess að lesa. Sökum þess hvað ég er dugleg að vinna (humm) og búa til jólagjafir þá hef ég mjög lítinn tíma til að dunda við þetta, og þessvegna verður þessi þýðing svona framhaldsverkefni (eitt af mjög mörgum í mínu lífi þessa dagana)

Það sem er svo sniðugt við þessa bók er að siðaboðskapurinn er hlutlaus, en þó algildur. Fókusinn er á hið bjarta og góða sem finna má í öllum siðaboðskap trúarbragðanna og húmanismans.

Svo er önnur bók þarna á PsiTek líka sem er jafnvel miklu betri en MKS, hún heitir In tune with the infinite og er bara hreint æði. Ég á einhversstaðar einhverja kafla úr henni sem er búið að þýða en ég nenni ekki að leita að þeim akkúrat núna.


2.18 Hinn meðvitaði hugur ætti að vera á varðbergi hverja einustu vökustund. Þegar "vaktmaðurinn" er "utanvið sig" eða þegar yfirveguð dómgreind er fjarri góðu gamni, sem getur gerst við ýmsar kringumstæður, þá er undirmeðvitundin berskjölduð og opin fyrir allskonar uppástungum úr öllum áttum. Á meðan maður er undir villtum spennuáhrifum óðagotsins og skelkaður, eða á hápunkti reiðikasts eða taumlausrar múgæsingar, þá eru aðstæðurnar hættulegastar. Þá er undirmeðvitundin opin fyrir áhrifum ótta, haturs, sjálfselsku, græðgi, sjálfseyðingar og öðrum neikvæðum öflum, sem koma frá nálægum persónum eða kringumstæðum. Útkoman af því er óheilbrigði af hæðstu gráðu, ásamt einkennum sem kunna að vara í mjög langan tíma. Þessvegna er svona mikilvægt að varðveita undirmeðvitundina fyrir fölskum skilaboðum.

7.3-5 Gerðu hugsýnina (það sem þú vilt fá) tæra og einfalda, haltu henni stöðugri í huganum og þannig færirðu hana smásaman og örugglega nær þér. Þú getur verið "það sem þú vilt vera".
Þetta er önnur af þessum sálrænu staðreyndum sem eru velþekktar, en því miður, þá er ekki nóg að lesa um hana til að ná árangrinum sem þú hefur í huga; það er ekki einu sinni nóg að búa til hina sálrænu hugsýn, hvað þá ef hún á að koma fram. Vinna er nauðsynleg - áreynsla, mikil sálræn áreynsla, framtak sem fáir eru viljugir til að leggja á sig.
Fyrsta skrefið er að sjá þetta fyrir sér. Það er líka mikilvægasta skrefið, vegna þess að það er áætlunin sem þú ferð eftir við það sem þú ætlar að byggja upp. Hún verður að vera áreiðanleg og hún verður að vera varanleg.

7.6  Þeir (verkfærðingar & arkitektar) sjá lokatakmarkið fyrir sér áður en þeir stíga eitt einasta skref; þannig átt þú að ímynda þér í huganum það sem þig langar í; þú ert að sá fræinu, en áður en þú sáir einhverju þarftu að vita hver uppskeran á að vera. Það er Hugmyndun.


Skrifað 24.11.2009 kl. 20:13 af bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.11.2009

Nokkur orð um bænina

Hérna eru nokkrar málsgreinar úr bókinni Leiðsögn til lífs án ótta, eftir Norman Vincent Peale. Það er ein mesta snilldarbók sem skrifuð hefur verið. Hún er ekki, þó að nafnið bendi til þess, bara um óttann og er ekki skrifuð fyrir óttaslegna fremur en aðra. Ég man að ég tók hana einu sinni útúr hillunni hjá mömmu og opnaði hana bara einhversstaðar og það sem ég las þá breytti lífi mínu.

(Nánar tiltekið þá voru það þessi hérna orð:

Eitt er að veita meðali viðtöku með augunum.

Til dæmis;
Taktu fram biblíuna þína og lestu nokkur af hinum geislandi orðum hennar. Nethimna augans tekur þá á móti spegilmynd. Hún breytist yfir í hugmynd, jákvæða trúarhugmynd. Hún fer í gegnum hugann, uns hún nær því sýkingarsvæði sem orsakast af ótta. Þar umkringist sýkingin læknandi mætti myndarinnar og hrekst á brott og að lokum spundrast hin sjúka hugsun úr huganum. Þú hefur þannig tekið inn læknandi meðal með því að lesa ritninguna."
)

Svo var það bara núna um daginn sem ég tók þessa bók aftur úr bókahillunni minni (ég eignaði mér hana eftir að ég gluggaði í hana fyrst) og er búin að vera að opna hana bara einhversstaðar undanfarin kvöld til að njóta þess sem hún hefur uppá að bjóða. Eftirfarandi fannst mér praktískt að birta á vefnum til þess að aðrir geti notfært sér það líka.



Bls. 105:

Til þess að verða þróttmikill biðjandi, verður maður að læra list bænarinnar. Það er misskilningur að trúa því, að lögmál einbeitingarinnar komi bæninni ekki við. Hæfni er vitanlega nauðsynleg fyrir allt framtak, sem þarfnast þróttar. Það er ekki rökrétt að halda að slíkrar hæfni sé ekki þörf, þegar maður ákallar það mesta allra máttarvalda. En til þess að læra list bænarinnar, er það aðeins nauðsynlegt að maður fylgi vissum einföldum reglum. Þú þarft ekki að sækja neinn háskóla eða tækniskóla til þess að verða sérfræðingur á þessu sviði.
Fyrsta skrefið til þess að læra að biðja, er einmitt það að biðja. Þú getur lesið sérhverja bók, sem skrifuð hefur verið um bænina og þú getur tekið þátt í hversu mörgum rökræðum sem vera vill, um bænina - eina leiðin til þess að læra að biðja, er að biðja.
Ungur tók ég tíma í ræðumennsku. Nokkru síðar hitti ég einn af mestu mælskumönnum samtímans og lagði þessa spurningu fyrir hann:
"Hvernig á maður að verða góður ræðumaður?"
"Með því að tala" svaraði hann. "Lærðu listina með æfingu. Talaðu opinberlega í hvert sinn sem þú færð tækifæri til þess. Haltu því áfram, æfðu stöðugt og reyndu að verða æ betri."
Þessi ráðlegging gildir á hvaða sviði sem er. Það er mikilvægt að læra lögmálin og tæknina varðandi það, sem þú vilt hafa vald á, en fyrst og síðast lærirðu með því að beita því.


Bls. 106:

Ég vitna enn á ný í Alexis Carrel: "Þegar við biðjumst fyrir, sameinumst við þeirri þrotlausu orku, er bindur alheiminn." Biðstu fyrir, hvar sem vera vill; á götunni, í jarðgöngunum, á skrifstofunni, í versluninni, í skólanum - alveg eins og í einrúmi í herberginu þínu eða í kirkjunni. Raunsönn bæn er einn þáttur þess að lifa. Í dag er bænin knýjandi nauðsyn í lífi einstaklinga og þjóða frekar en nokkru sinni fyrr.
Raunhæf aðferð er að nýta frístundir, sem ella yrðu ekki að nokkru gagni. Ég þekki unga konu sem býr í Brooklyn og vinnur á Manhattan. Áður notaði hún þær fimmtán mínútur, sem ferðin með neðanjarðarbrautinni tók, til þess að sitja og glápa á auglýsingaspjöldin á vagninum. En svo var það dag einn að henni datt í hug að loka augunum og biðja í hljóði Faðir vorið og hafa yfir nokkrar aðrar ritningargreinar. Hún bað líka fyrir verkamönnum og ýmsu öðru fólki. Hún biður þannig í um það bil hálftíma daglega. Á þessum þrjátíu mínútum sem hún áður varði til þess að sitja og sökkva sér niður í áhyggjur sínar og einskis verða hluti, öðlast hún nú leiðsögn til dásamlega hamingjuríks og nytsams lífs.


Bls. 107:

Vinur minn notar strætisvagnaferðir sínar til þess að biðja fyrir samferðafólkinu. Hann lítur á það eitt af öðru og biður fyrir honum eða henni. Fólk, sem þekkir hann, hefir sagt frá því að þessi útgeislun hans af kærleika og góðvild gjörbreyti andrúmsloftinu í bílnum á hinn undraverðasta hátt.
Enda þótt þú gerir ekki annað en notfæra þér nokkrar af þínum annars gagnslausu mínútum til þess að biðja, verður þú þess brátt var, að nýr þróttur og gleði fer að smjúga í gegnum þig.
Eins og fyrir önnur vísindi gilda einnig fyrir bænina ákveðin lögmál. Kynntu þér þessi lögmál og beittu þeim. Þá munt þú óhjákvæmilega ná tilætluðum árangri. Eitt af grundvallandi bænarlögmálunum er einfaldleikinn. Gerðu bæn þína einfalda, blátt áfram og eðlilega. Það er ekki nauðsynlegt að nota hefðbundnar kenningar og orð. Talaðu við Guð einsog vin þinn.



Skrifað 15.11.2009 kl. 22:07 af bambalóru

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.11.2009

Nei nei, ekki um jólin ;)





Skrifað 13.11.2009 kl. 9:33 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.11.2009

Leiðbeiningar um rétta tilbeiðslu


...úr Bhagavad Gita

12.kafli

"Just fix your mind upon Me, the Supreme Personality of Godhead, and engage all your intelligence in Me. Thus you will live in Me always, without a doubt."

Skrifað 8.11.2009 kl. 23:22 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.11.2009

Ekkert að sjá hér...





Skrifað 8.11.2009 kl. 17:43 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.11.2009

Uppbyggjandi orð....


... til að hjálpa manni að móðgast ekki yfir framkomu annarra þegar þeir eru með vesen eða aðfinnslur, og ráðleggingar til þess að ná stjórn á eigin hamingju.

Mér finnst þetta vel viðeigandi emoticon


Skrifað 5.11.2009 kl. 18:12 af velvakandi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.11.2009

Eilítið


Allt úr sálmunum nema annað sé tekið fram:

Auga Drottins hvíla á þeim er óttast hann, á þeim er vona á miskunn hans. Hann frelsar þá frá dauða og heldur lífinu í þeim í hallæri.

Hér er volaður maður sem hrópaði og Drottinn heyrði og hjálpaði úr öllum hans nauðum. Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann og frelsar þá.

Elskið Drottinn, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta. Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottinn.

Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni, þá munt þú gleðjast yfir Drottni og hann mun veita þér það sem hjarta þitt þráir.

Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og rettlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.

Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til að njóta hamingjunnar, þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali, forðastu illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.

Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið. Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

Hættu hinni fyrri breytni og afklæðist hinum gamla manni sem er spilltur af tælandi girndum en endurnýjist í anda og hugsun.

                efesus

Sjálfur Drottinn friðarins gefi yður friðinn, ætíð á allan hátt.
                2.þessaloniku



Skrifað 1.11.2009 kl. 22:46 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.11.2009

ESB tillögur

Skrifað 1.11.2009 kl. 22:05 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.11.2009

Ávörp Henry Drummond


Ég var semsagt að uppgötva þennan snilling fyrir svefninn í gærkvöldi með því að finna litla bók uppí hillu. Mér tókst að klára mig í gegnum hluta af henni sem kallaðist (einsog titillinn):

The Greatest thing in the World

Ég vissi fyrst ekki um hvað það fjallaði né neitt um höfundinn (kristinn vísindasnillingur á 19.öld), en þetta tiltekna ávarp eftir hann lýsir semsagt eiginleikum kærleikans og þeirri staðreynd að Guð er fyrst og fremst kærleikur (1.Jóhannesarbréf hamrar á því). Mjög merkilegt efni og HD fókusar á 13.kafla Fyrra Kórintubréfs þarsem kærleikanum er lýst. Mörgum, m.a mér, hefur fundist sumt af því fallega ljóði vera torskilið en Henry Drummond skilgreinir þetta allt niðrí kjölinn og lýsir hinum níu eiginleikum kærleikans alveg snilldarlega:

The Spectrum of Love has nine ingredients:

Patience     "Love suffereth long."
Kindness     "And is kind."
Generosity     "Love envieth not."
Humility     "Love vaunteth not itself, is not puffed up."
Courtesy     "Doth not behave itself unseemly."
Unselfishness     "Seeketh not its own."
Good temper     "Is not provoked."
Guilelessness     "Taketh not account of evil."
Sincerity     "Rejoiceth not in unrighteousness, but rejoiceth with the truth."

Patience; kindness; generosity; humility; courtesy; unselfishness; good temper; guilelessness; sincerity-these make up the supreme gift, the stature of the perfect man.


En þetta er bara formúlan, hann lýsir hverju elementi fyrir sig.

Í stað þess að velja bestu hlutina úr textanum (sem er frekar langur) og setja þá hér inn á ensku þá ætla ég í staðinn að reyna, með tíð og tíma, að þýða þá sjálf seinna meir. Þangað til hvet ég ykkur öll til þess að fara inná bók sem er á netinu og sem inniheldur þetta ávarp auk nokkurra annarra.

The Greatest Thing in the World og fleira eftir Henry Drummond

og lesa. Það er mjög gaman og gagnlegt!

Skrifað 1.11.2009 kl. 14:33 af bambalóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.10.2009

Losaðu þig við egóið ekki seinna en í dag


Ég rakst á þessa ágætu grein á fréttayfirlitinu hjá David Icke í dag, ég hef svona misjafna en þó nokkuð góða skoðun á Henry Makow sem skrifar hana en veit lítið sem ekkert um Echart Tolle, nema að hann hefur verið lofaður mjög af sjálfri Opruh, og þannig karakterar eru mjög oft eitthvað sem þarf að varast. En það sem ég hef lesið um ET er aðallega það sem Henry Makow hefur skrifað um hann í sínum greinum og ég hef þá vanalega ekki getað annað en verið mjög sammála boðskapnum sem hann boðar, svona yfirleitt.

Þetta með egóið er grundvallaratriði í öllum okkar veruleika. Röddin í hausnum á okkur er alltaf að reyna að troða sér að með sitt "ég vill"

Hún veldur metnaði, heimtufrekju, sjálfsvorkunn og allskonar fleiri ömurlegum einkennum á sálarlífi okkar. Ég er mjög sammála ET í því að við erum fyrst og fremst sál sem þarfnast björgunar og allt sem heitir "ég vill" eða "ég á skilið" er bara skaðlegt fyrir hana. Ekkert getur hjálpað henni nema andleg undirgefni. Heimtufrekjan og metnaðurinn sem ég er að tala um fellur heldur alls ekki að því sem Frelsarinn Kristur sagði okkur að gera, nefninlega að njóta þess að þjóna frekar en að láta þjóna okkur, að taka lítilsvirðingu heimsins fagnandi osfrv, vegna þess að með því einu fengjum við öðlast lífið "á himnum". En já, það getur verið ansi erfitt fyrir marga sem þó reyna að sjá heiminn í þessu ljósi að halda það út. Rödd egósins skemmir yfirleitt alltaf fyrir og þessvegna er mjög nauðsynlegt að taka til sín boðskapinn í greininni eftir Makow, og reyna að þagga niðrí henni í eitt skipti fyrir öll. Nema, að auðvitað er þörf fyrir ákveðið jafnvægi í þessum efnum og það er kannski best að reyna bara að stjórna egóinu sínu, virða tilvist þess, og láta það um að byggja upp almennilegan bústað fyrir sálina, að vera sjálfur bústaður fyrir anda sem gerir hið rétta og getur verið stoltur af því sem hann er, án gallanna sem fylgja egóinu annars.


(spurning um að þýða þessa grein kannski við tækifæri?)


Svo var á Daily Mail í morgun ein mjög dapurleg mannvonskusaga úr fortíðinni sem fangaði athygli mína og ég las hana frá upphafi til enda. Ef hún dregur ekki niður í sjálfsvorkunn einhverra þá veit ég ekki hvað ætti að gera það:

Fangi í mennska dýragarðinum

Ég ætlaði að deila henni með félögunum inni á Facebook en þegar ég var uþb að ýta á share takkann þar þá fékk ég hugljómum um að Fésbókin væri ekkert annað en nútíma sýningarstúíó fyrir menn sem vilja vekja athygli á sínum smávægilegu athöfnum og hugsunum. Mjög oft að þykjast vera eitthvað betri en þeir eru eða einfaldlega bara að sóa tíma sínum og annarra með tilgangslausu bulli á meðan heimurinn snýst til andskotans. Undir vökulu auga stóra bróður allan tímann, að sjálfsögðu. Og, það gefur manni nákvæmlega ekkert andlega að vera þar inni að sóa tíma sínum í að fylgjast með öðrum. Facebook og fleiri slíkar samskiptavefsíður og bloggsíður eru ekkert annað en risavaxin samkunda af egóum sem vilja sýna að þau séu eitthvað. Þannig að, þetta varð til þess að ég eyddi út mínum fésbókarreikningi og fannst það mjög frelsandi. Og nota bene, það var áður en ég sá þessa grein um egóið eftir Makow. 


Skrifað 31.10.2009 kl. 12:34 af bambalóra

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

31.10.2009

Nýjasta uppátæki FBI - mynd






Skrifað 31.10.2009 kl. 12:28 af bambalóru

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.10.2009

DIDACHE - ísl þýðing

Didache

Lærdómur Drottins, opinberaður postlunum tólf, handa þjóðunum.

 

Fyrsti kafli; Vegirnir tveir og Fyrsta Boðorðið
Vegirnir eru tveir, annar er lífsins og hinn dauðans, en það er mikill munur á milli veganna tveggja. Vegur lífsins er þá þessi; Fyrst og fremst skaltu elska Guð sem skapaði þig, og í öðru lagi; elskaðu náunga þinn einsog sjálfan þig, og gerðu engum öðrum nokkuð það sem þú vilt ekki að sé gert við þig. Og í þessum skipunum er lærdómurinn þessi; Blessaðu þá sem bölva þér, biddu fyrir óvinum þínum og fastaðu vegna þeirra sem ofsækja þig. Því hvaða laun fást fyrir að elska þá sem elska þig? Gera ekki heiðingjarnir hið sama? En elska skaltu þá sem hata þig, og þú munt ekki eiga einn einasta óvin. Forðastu holdlegar og veraldlegar nautnir. Ef einhver slær þig á hægri kinnina, snúðu þá hinni að honum og þá muntu verða fullkominn. Ef einhver biður þig að ganga með sér eina míla, skaltu ganga með honum tvær. Ef einhver tekur yfirhöfn þína, skaltu gefa honum kápu þína að auki. Ef einhver tekur frá þér eign þína, biddu þá ekki um að fá hana til baka, því að í raun er það ekki hægt. Gefðu öllum þeim sem biðja þig og biddu ekki um að fá það til baka, því að Faðirinn vill að allir fái að njóta með af okkar eigin blessunum (fríu gjöfum). Sæll er sá sem gefur samvæmt boðorðinu, því hann er ósekur. Vei þeim sem þiggur, því að ef einhver þiggur í neyð sinni er hann ósekur, en sá sem þiggur án þurftar mun greiða gjald sektarinnar, fyrir það sem hann hefur þegið og hversvegna. Og þegar hann er króaður af mun hann skoðaður verða, útfrá þeim hlutum sem hann hefur gert, og hann skal ekki sleppa þaðan fyrren hann hefur endurgreitt hinn síðasta eyri. Og einnig varðandi þetta, þá hefur verið sagt; "láttu ölmusuna svitna í lófanum, þartil þú veist hverjum þú átt að gefa".

Annar kafli. Annað boðorðið; Dauðleg og forboðin synd.
Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki iðka hórdóm, þú skalt ekki fremja skömm að hætti N.a.m.b.l.a (pederasty), þú skalt ekki iðka saurlifnað, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki iðka töfra, þú skalt ekki iðka galdra, þú skalt ekki myrða barn, ekki með fóstureyðingu né drepa það sem þegar er fætt. Þú skalt ekki girnast það sem tilheyrir nágranna þínum, þú skalt ekki sverja, þú skalt ekki bera falsvitni, þú skalt ekki mæla illt, þú skalt ekki bera kala. Þú skalt ekki vera tvíræðinn í hugsunum né falskur í tali, því falstal (double talk) er snara dauðans. Ræða þín skal ekki vera fölsk, né innantóm, heldur opinberuð í verki. Þú skalt ekki vera ágjarn, né skiptandi góss, né hræsnari, né snöggur til ills, né drambsamur. Þú skalt ekki leggja á ráðin gegn nágranna/náunga þínum. Þú skalt ekki hata nokkurn mann, en suma máttu áminna og fyrir sumum skaltu biðja, og suma skaltu elska meira en eigið líf.

Kafli þrjú. Aðrar bannaðar syndir.

Barnið mitt, flýðu frá öllu illu og öllu sem því líkist. Vertu ekki hvatur til reiði, því að reiði leiðir til morðs. Vertu hvorki afbrýðissamur né erjugjarn, né skapbráður, því að af öllu þessu eru morðin sprottin. Barnið mitt, vertu ekki nautnamaður, því nautnir leiða til saurlifnaðar. Vertu hvorki með sóða kjaft né leitandi augu, því að af því öllu er hórdómurinn sprottinn. Barnið mitt, vertu ekki að fylgjast með táknum, því það leiðir til skurðgoðadýrkunar. Vertu hvorki töframaður né stjörnuspekingur, né hreinsari né viljugur til þess að horfa á slíka hluti, því að úr öllu því er skurðgoðadýrkun sprottin. Barnið mitt, vertu ekki lygari, því lygi leiðir til þjófnaðar. Vertu hvorki elskur að peningum né hégómlegur, því að úr öllu því er þjófnaður sprottinn. Barnið mitt, vertu ekki muldrari, því að það er leiðin til guðlasts. Vertu hvorki sjálfviljugur né illa innrættur, því að úr öllu því eru guðlastanir sprottnar. Vertu heldur auðmjúkur, þarsem hinir auðmjúku munu jörðina erfa. Vertu þolinn í þrautum og aumkunarverður og hreinskiptinn og blíður og góður og alltaf með skjálfta vegna orðanna sem þér hafið heyrt. Þú skalt ekki upphefja sjálfan yður, né hafa oftraust á eigin sál. Sál þín skal ekki sameinast þeim sem upphefja sig en með réttlátum og lítilsigldum skal hún hafa samneyti. Taktu öllu sem gerist fyrir þig sem góðu, vitandi að án Guðs á ekkert sér stað.

Kafli fjögur. Ýmsar fyrirskipanir.
Barnið mitt, mundu dag og nótt eftir þeim sem talaði orð Guðs til þín, og heiðraðu þann aðila sem Drottinn. Því að hvar sem Drottins-reglan er tautuð, þar er Drottinn. Og leitaðu að ásjónu dýrlinganna dag eftir dag, til þess að þú megir hvílast ofan á orðum þeirra. Þráðu ekki deilur, en leiddu heldur saman þá sem deila. Dæmdu réttlátlega, og farðu ekki í manngreinaálit þegar þú áminnir fyrir brot. Þér skuluð ekki vera óákveðinn um hvort það á að verða eða ekki. Vertu ekki sá sem teygir fram hendurnar til að þigga og dregur þær til baka þegar á að gefa. Ef þér eigið eitthvað, þá er það gegnum hendurnar sem þér borgið lausnargjald fyrir syndir yðar. Hikaðu ekki við að gefa, og kvartaðu ekki þegar þú gefur; því að þú skalt kynnast því hver er hinn góði endurgjaldari allra hluta. Snúðu ekki baki við þeim sem skortir, en deildu heldur öllum hlutum með þínum bróður og segðu ekki að þeir séu þínir. Því að ef þér eruð hluttakendur í því sem er ódauðlegt, hversu miklu meira ertu ekki með í hinu dauðlega? Fjarlægðu ekki höndina af syni þínum eða dóttur, en kenndu þeim heldur að óttast Drottinn frá æsku sinni. Festu aldrei neitt í gremju við ánauðugan mann eða þjónustumey sem vona til sama Guðs, nema að þú viljir að þau óttist annan en Guð, sem yfir báðum er; því að hann kemur ekki til að kalla samkvæmt ytra útliti, heldur til þeirra sem Andinn hefur undirbúið. Og þér ánauðugu menn skuluð vera undirgefnir meisturum yðar sem "type of God" í hóglæti og ótta. Þér skulið hata alla hræsni og allt sem er ekki þóknanlegt Drottni. Yfirgefið ekki boðorð Drottins að neinu leiti, en haldið því sem þér hafið meðtekið, án þess að bæta við það eða taka frá því. Í kirkjunni skulið þér gangast við syndum yðar og þér skulið ekki ganga til bæna með óhreina samvisku. Þetta er vegur lífsins.

Fimmti kafli. Vegur dauðans.
Og vegur dauðans er þessi; Fyrst og fremst er hann illur og fordæmdur; morð, framhjáhald, losti, saurlífi, þjófnaðir, skurðgoðadýrkun, töfrar, galdrar, nauðgun, falsvitni, hræsni, tvídrægni, svik, drambsemi, siðleysi, "self-will", ágirnd, sóðatal, afbrýðisemi, of mikið sjálfstraust, sjálfs-upphafning, sjálfshælni; ofsækjendur hins góða, hatandi sannleikann, elskandi lygina, þekkja ekki laun réttvísinnar, halda sér ekki við hið góða né við réttlátann dóm, horfa ekki eftir hinu góða en bara hinu illa; sá sem auðmýktin og þolgæðið eru fjarri, elskandi hégómann, að sækjast eftir hefndinni, án vorkunnar í garð fátæklingsins, án þess að vinna fyrir hinum þjáðu, þekkjandi ekki Hann sem skapaði þau, morðingi barna, eyðileggjandi handarverka Guðs, vísandi frá sér þeim sem er í nauðum, ofsækjandi þann sem er í vanda, talsmaður hinna ríku, löglausir dómarar yfir hinum fátæku, guðsvolaðir syndarar. Látið frelsast, börn, frá öllu þessu.

Sjötti kafli. Mót falskennurum, og skurðgoða matfórn.
Sjáið til þess að enginn valdi því að þér villist frá vegi þessa Lærdóms, því hann kennir þér, auk Guðs. Og ef þú ert fær um að bera alla birgði Drottins, þá verðurðu fullkominn; en ef þú getur það ekki, gerðu þá bara það sem þú getur. Og varðandi matinn, þá skaltu halda því sem þú getur, en vertu gríðarlega varkár gagnvart því sem fórnað er til skurðgoða, því að það er þjónusta við dauð goð.

Sjöundi kafli. Um skírnina.
Og varðandi skírnina, skírið á þennan hátt; Eftir að hafa sagt allt þetta, þá skírið inní nafn Föðurins, og Sonarins og Heilags anda, í lifandi vatni. En ef þér hafið ekkert lifandi vatn, skírið þá í hinu vatninu, og ef það er ekki hægt með köldu vatni, notið þá volgt. En ef þér hafið hvorugt, hellið þá vatni þrisvar yfir höfuðið í nafni Föðurins og Sonarins og Heilags anda. En á undan skírninni skal láta skírarann fasta og þann sem lætur skírast, og allir aðrir sem vettlingi geta valdið, en þér skulið biðja þann sem lætur skírast að fasta einn eða tvo daga þar á undan.


Áttundi kafli. Fasta og Bænir (faðirvorið).
En látið eigi föstu yðar vera meðal hræsnara, því að þeir fasta á öðrum og fimmta degi vikunnar. Fastið heldur á fjórða degi og aðfangadegi (föstudegi). Biðjið ekki einsog hræsnararnir, heldur frekar einsog Drottinn hefur fyrirskipað í Guðspjalli sínu, einsog þetta;

Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn. Tilkomi þitt ríki. Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt (þarflegt) brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá þeim illa (illu). Því að þinn er mátturinn og dýrðin, að eilífu. (alt. ríkið, mátturinn og dýrðin)


Biðjið svona þrisvar sinnum á hverjum degi.

Níundi kafli. Altarissakramentið - Eucharist.
Og nú um eucharistið, gefið þakkir á þennan hátt. Fyrst um bikarinn;

Við þökkum þér, ó Faðir, fyrir hið heilaga vín þjóns þíns Davíðs, sem þú gjörðir kunnugt gegnum Jesúm Þjón Þinn; þín sé dýrðin að eilífu.


Og um brauðið sem brotið er;

Við þökkum Þér, vor Faðir, fyrir lífið og þekkinguna sem þú opinberaðir oss gegnum Jesús þinn þjón; þín sé dýrðin að eilífu. Jafnvel einsog þessu brotna brauði var dreift um hæðirnar, safnað saman og svo gert að einu, þannig skal kirkja Þín safnast saman úr öllum áttum jarðar inní Ríki Þitt, því að þín er dýrðin og krafturinn í Jesú Kristi, að eilífu.


En látið engan eta né drekka af altarisbrauðinu/víninu, nema að þeir hafi látið skírast inní nafn Drottins, því að um þessa hluti hefur Drottinn líka sagt; "Gefið ekki hundunum hið heilaga"

Tíundi kafli. Bænir á eftir altarisgöngu.
En þegar þér hafið fengið fylli, færið þá þakkir á þennan hátt;

Við þökkum þér heilagi Faðir, fyrir þitt heilaga nafn sem þú gerðir að sáttmála í hjörtum vorum, og fyrir þekkinguna og trúna og ódauðleikann sem þú gerðir okkur fært að þekkja gegnum Jesús þjón þinn; þín sé dýrðin um aldir. Þú, Meistari almáttugur, skapaðir alla hluti fyrir sakir nafns þíns; Þú gafst mat og drykk fyrir mennina að njóta, til að þeir myndu færa þér þakkir; en okkur hefur þú gefið ríkulega af andlegu fæði og drykk og eilífu lífi gegnum Þjón Þinn. Fyrir alla hluti þökkum við Þér fyrir að þú ert máttugur; þín sé dýrðin að eilífu. Mundu Drottinn, kirkjuna þína, frelsa hana frá öllu illu og gjörðu hana fullkomna í Þinni ást og safnaðu henni saman frá öllum vindáttunum fjórum, helgaðir í Ríki þitt um aldir. Lát náðina koma, og þennan heim líða undir lok. Hósanna Guði (Syni) Davíðs! Ef einhver er heilagur, látið hann koma, ef einhver er ekki þannig, látið hann iðrast. Maranatha. Amen.


Leyfið spámönnunum að færa þakkir eins oft og þeim langar.

Ellefti kafli. Um kennara, postula og spámenn.
Hver sem því kemur og kennir yður alla þessa hluti sem fyrr er frá greint, honum skal tekið á móti. En ef kennarinn sjálfur snýr sér frá og kennir aðra kenning sem afmáir þessa, þá hlýðið eigi á hann. En ef hann kennir þannig að réttvísi aukist og þekking á Drottni, þá takið á móti honum sem Drottni. En varðandi postulana og spámennina, gjörið þá einsog Guðspjallið boðar. Takið á móti öllum postulum sem til yðar koma, sem væru þeir Drottinn. En hann skal ekki dvelja hjá yður lengur en einn eða tvo daga, ef þörf krefur. En ef hann dvelur í þrjá daga þá er hann falsspámaður. Og þegar postulinn heldur á braut á hann ekki að taka með sér nokkuð annað en brauð, þartil hann finnur sér samastað. Ef hann biður um peninga, þá er hann falsspámaður. Og spámann sem talar í Andanum skulið þér eigi reyna eða dæma; því að hver einasta synd mun verða fyrirgefin, en þessi synd er ófyrirgefanleg. En það eru ekki allir sem tala í andanum spámenn, heldur bara sá sem heldur sér við vegu Drottins. Þar fyrir munu falsspámaðurinn og spámaðurinn verða þekktir af veginum sem þeir fylgja. Og hver sá spámaður sem pantar sér mat í Andanum mun eigi eta hann, nema hann sé að sönnu falsspámaður. Og hver sá spámaður sem kennir sannleikann en iðkar ekki sjálfur einsog hann kennir, er falsspámaður. Og hver spámaður sem sannar að hann vinnur fyrir leyndardóm Kirkjunnar í heiminum, en kennir ekki öðrum að breyta einsog hann sjálfur gjörir, skal ekki verða dæmdur á meðal yðar, því að hjá Guði fær hann sinn dóm; því þannig var það einnig með hina fornu spámenn. En hver sá er segir í andanum; "Gefið mér pening" eða eitthvað annað þvíumlíkt, hann skuluð þér eigi hlýða á. En ef hann segir yður að gefa til annarra sem eru í neyð, látið þá engann leggja dóm á hann.

Tólfti kafli. Móttaka kristinna.

Takið á móti öllum sem koma í nafni Drottins, og reynið þá og kynnist þeim síðan, því þér öðlist skilning til hægri og vinstri. Ef sá sem kemur er förumaður, aðstoðið hann þá eins og yður er unnt, en hann skal ekki dvelja hjá yður lengur en tvo til þrjá daga, ef þörf krefur. En ef hann er listamaður og vill dvelja hjá yður áfram, látið hann þá vinna og vera í fæði. En ef hann kann enga iðn samkvæmt skilningi yðar, sjáið þá til þess að ef hann er kristinn, þá sé hann ekki iðjulaus þegar hann er hjá yður. En ef hann vill slíkt eigi gjöra, þá er hann "Christ-monger". Sjáið til þess að slíkum sé haldið fjarri.

Þrettándi kafli. Uppihald spámanna.
En hver einasti sanni spámaður sem vill búa á meðal yðar er verðugur síns uppihalds. Þannig er sannur kennari í sjálfum sér verðugur, einsog verkamaður, síns uppihalds. Frumgróði hverrar uppskeru skal þessvegna tekinn til hliðar handa spámönnunum; af afurðum vínpressunnar, þreskigólfsins, uxans og kindarinnar, því að þeir eru yðar æðstu prestar. En ef þér hafið engan spámann skal gefa það fátækum. Ef þér búið til brauðdeig gefið þá frumgróða þess samkvæmt boðorðinu. Eins skuluð þér þegar krukka af víni eða olíu er opnuð, mæla af þeim frumgróðann og gefa spámönnunum. Og af peningum, silfri, fatnaði og hverri eign skal taka frumgróðann, einsog þér finnst við hæfi, og gefa samkvæmt boðorðinu.

Fjórtándi kafli. Kristileg samkoma á Drottinsdegi.
Safnist saman á hverjum Drottinsdegi og bjótið brauð, og færið þakkir eftir að hafa játað brot yðar, til að fórn yðar megi vera hrein. En leyfið engum sem er ósáttur við náunga sinn að koma á samkomuna, þar til þeir hafa náð sáttum, til þess að fórnin verði ekki vanhelguð. Því að þetta er það sem talað var um af Drottni; "Á hverjum tíma og stað skal færa mér hreina fórn, því að ég er mikill konungur" segir Drottinn, og nafn mitt er dýrlegt meðal þjóðanna.

Fimmtándi kafli. Biskupar og Djáknar; kristileg aðfinnsla.
Skipið þessvegna fyrir yður biskupa og djákna verðuga Drottins, menn auðmjúka, án ástar á peningum, sannorða og sannreynda, því að þeir veita yður þjónustu sem spámenn og kennarar. Fyrirlítið þá því eigi, því að þeir eru sómi yðar, ásamt spámönnunum og kennurum. Og áminnið hvern annan, ekki í reiði heldur í friði, einsog þér sjáið gjört í guðspjöllunum, og leyfið engum að tala við þann yðar sem hefur gjörst brotlegur við náunga sinn, þar til hann iðrast. En gjörið bænir yðar og ölmusu og öll yðar verk, einsog þér hafið fordæmi fyrir í Guðspjalli Drottins vors.

Sextándi kafli. Vaktstaða; Endurkoma Drottins.

Vakið yfir lífi yðar. Látið eigi lampa yðar slokkna, né lendar yðar losna, en verið viðbúin, því að þér vitið ekki á hvaða stundu Drottinn vor mun koma. En komið oft saman, leitið þeirra hluta sem hæfa sálum yðar; því að ekkert af heildartíma trúfestinnar mun koma yður að gagni, ef þér eruð ekki fullkomnuð á síðustu tímum. Því að á hinum síðustu dögum munu falsspámenn og villendur margfaldast, og kindur munu breytast í úlfa, og ást verður breytt í hatur. Því að þegar lögleysi eykst þá munu þeir hata og ofsækja og svíkja hvern annan, og þá mun birtast heims-villandinn sem sonur Guðs og hann mun gjöra tákn og undur, og jörðin mun verða gefin í hans hendur og hann mun gjöra svívirðilega (og óguðlega) hluti sem hafa aldrei átt sér stað áður, frá því í upphafi veraldar. Þá mun allt mannkyn fara í eldsins dóm og mörg munu hrasa og tortímast, en þau sem eru stöðug í trú sinni munu bjargast undan sjálfri bölvaninni. Og þá munu opinberast merki sannleikans; hið fyrsta, útþennsla himnanna, svo merki lúðrahljómsins, og hið þriðja er upprisa dauðra. En þó ekki allra, því einsog sagt er; "Drottinn mun koma og allir hans heilögu með honum." Þá mun veröldin sjá Drottinn koma á skýjum himinsins.

Skrifað 25.10.2009 kl. 16:57 af bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.10.2009

Fyrra almenna bréf Péturs, 1.kafli:


3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum, 4til óforgengilegrar, flekklausrar og ófölnandi arfleifðar, sem yður er geymd á himnum. 5Kraftur Guðs varðveitir yður fyrir trúna til þess að þér getið öðlast hjálpræðið, sem er þess albúið að opinberast á síðasta tíma.

6Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. 7Það er til þess að trúarstaðfesta yðar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó stenst eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists. 8Þér hafið ekki séð hann, en elskið hann þó. Þér hafið hann ekki nú fyrir augum yðar, en trúið samt á hann og fagnið með óumræðilegri og dýrlegri gleði, 9þegar þér eruð að ná takmarki trúar yðar, frelsun sálna yðar.

10Þessa frelsun könnuðu spámennirnir og rannsökuðu vandlega þegar þeir töluðu um þá náð, sem yður mundi hlotnast. 11Þeir rannsökuðu, til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem í þeim bjó, benti, þá er hann vitnaði fyrirfram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir. 12En þeim var opinberað, að eigi væri það fyrir sjálfa þá, heldur fyrir yður, að þeir þjónuðu að þessu, sem yður er nú kunngjört af þeim, sem boðuðu yður fagnaðarerindið í heilögum anda, sem er sendur frá himni. Inn í þetta fýsir jafnvel englana að skyggnast.

13Gjörið því hugi yðar viðbúna og vakið. Setjið alla von yðar til þeirrar náðar, sem yður mun veitast við opinberun Jesú Krists. 14Verið eins og hlýðin börn og látið eigi framar lifnað yðar mótast af þeim girndum, er þér áður létuð stjórnast af í vanvisku yðar. 15Verðið heldur sjálfir heilagir í allri hegðun, eins og sá er heilagur, sem yður hefur kallað. 16Ritað er: "Verið heilagir, því ég er heilagur."


Skrifað 15.10.2009 kl. 21:08 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.10.2009

Heimurinn einsog mér finnst að hann ætti að vera :)



Skrifað 13.10.2009 kl. 21:23 af bambi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.10.2009

Lækningamáttur almættisins.

Bara...............njótið augnabliksins:


Skrifað 13.10.2009 kl. 19:53 af þór

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.10.2009

Óþekkt frumkristni


Hérna er linkur á bók sem var gefin út 1926 og inniheldur nokkur vinsæl rit úr frumkristni sem komust ekki í Biblíuna, þau eru sum hver mjög skemmtileg en samt er það að sjálfsögðu misjafnt.

Vonandi fyllir þetta einhver ykkar af trúrækni emoticon hehehe


Skrifað 12.10.2009 kl. 17:58 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.10.2009

Birtingarmynd krákunnar sem ills anda - indíánaþjóðsaga


Kráka bjó á hárri mesa-brún suðvestur af Oraíbi þarsem sólarhelgidómarnir eru staðsettir. Hann var vanur að ganga upp og niður meðfram brúninni og horfa á fólkið sem var að sá korninu sínu niðri í dalnum. "Þakka ykkur," sagði hann, "fyrir að sá þessu handa mér." Stundum flaug hann yfir Oraíbi þorpið til þess að fylgjast með fólkinu. Hann tók líka alltaf eftir því hver sáði korninu sínu fyrstur, og þegar kornið byrjaði að spretta sagði hann: "Þessi akur var gróðursettur fyrstur, þessvegna ætla ég að fara þangað og borða," sem hann og gerði. Hopi-fólkið var mjög ósátt vegna þessa. Þessi Há-Kráka hermdi líka eftir veikindum. Í hvert sinn sem einhver í þorpinu var slæmur þá myndi Krákan á einn eða annan hátt, í leynum og án þess að nokkur tæki eftir, hafa áhrif á og leggja þann einstakling í álög þannig að hann yrði veikur; sumir dóu jafnvel útaf því. Hvernig hann fór að þessu vissi Hopi-fólkið ekki. Það gerðist ósýnilega, á alveg sama hátt og Hopi-fólkið sagði að hann borðaði kornið þeirra þegar þau höfðu yfirgefið akrana, án þess að þau gætu séð hann að verki. Krákan, eða Sjúkdómur, átti það líka til að spila með fólk á annan hátt, stundum t.d með því að blása sínum illu áhrifum í fólkið, þannig að það byrjaði að stela. Þau urðu mjög leið eftirá, og sögðu: "Hvað er það sem gerir mig svona slæman?, ég var ekki vanur að gera svona lagað áður." Gott fólk sem ekki hafði sterkt hjarta breyttist þessvegna stundum í slæmt fólk vegna skaðlegra áhrifa Krákunnar. Þau voru vön að segja að í þessu ástandi þá væru þau "kanánapunangwa yéshe", sem þýðir, að sitja uppi með eða að lifa með óhlýðnu hjarta. En vegna þess að Krákan er stanslaust að reyna að fá Hopi-fólkið til þess að gera slæma hluti, og læða þarmeð sjúkdómum inní líkama þeirra, þá er einnig annar kraftur að verki sem reynir að vinna gegn athöfnum Krákunnar, en hver sú óséða vera er veit Hopi-fólkið ekki. Þau vita ekki hvar hún býr; né geta þau nefnt hana með nafni; þau tala um hana sem Þann-Sem-Gerir-Gott-Fyrir-Þau-Öll, og sem vill gera þau góð, eða sem Þann-með-Góða-Hjartað osfrv. Hugmyndirnar um þessa veru virðast fremur óljósar. Það er ekki alveg ljóst hvort Hopi-fólki álítur þennan vætt vera sérstakan persónuleika eða einfaldan kraft, eða áhrif, en þau trúa því að hvað svosem þetta sé, þá sé hann ekki eins sterkur og Krákan, þó að þessi tvö öfl séu sífellt að togast á um hvern Hopi-einstakling, annar er að reyna að hafa slæm áhrif á hann og hinn reynir að berjast gegn slæmu áhrifunum. Hopi-fólkið segir að stundum, þegar þau eru undir áhrifum Krákunnar, þá láti hinn krafturinn finna fyrir sér á einhvern dularfullan hátt, þannig að þau finni skyndilega óvænt sjokk; einsog þau segja t.d að gerist stundum þannig að þau reki fótinn skyndilega í einhvern nálægan hlut. Þannig segjast þau gera sér grein fyrir því að "Góða fyrirbærið" eða Veran, sé að reyna að hafa áhrif á þau og bjarga þeim frá einhverjum slæmum álögum Krákunnar.


Saga #47 í Tradition of the Hopi

Skrifað 12.10.2009 kl. 15:43 af bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.10.2009

Innantómt hjal

Þú talar fyrir daufum eyrum Hr Gylfi.

Þið hafið haft allan þann tíma sem til er í veröldinni til þess að gera eitthvað af viti í málefnum verkafólks á Íslandi, en því miður gleymt ykkur við það, að byggja glæsihýsi og flækja málin, með því að fjölga bara umsóknareyðublöðum um ekkert.

Leggið bara starfsemina niður, hún er hvort sem er bara enn einn bagginn á nánast gjaldþrota launafólki í þessu landi.

Fyrir utan það, að þá er stríð ekki það sem almenningur í þessu landi þarf mest á að halda um þessar mundir, heldur friður. Friður hjartans. Það eru bara menn eins og Bush og Tony Blair sem trúa á að stríð séu lausnin á öllum vandamálum heimsins.

Þið hjá ASÍ minnist t.d. aldrei einu aukateknu orði á allar skerðingar lífeyrissjóðanna á lífeyri ykkar umbjóðenda!! Þorið ekki að anda á þá.

Þið eruð alveg eins og lærisveinarnir í bátnum, þegar stormurinn kom, og Jesús hastaði á vindinn. Skíthrædd um að missa völdin.

Það er ekki einu sinni hægt að bjóða sig fram til formanns hjá ykkur, nema þekkja einhverja í klíkunni.

Farðu bara að biðja Gylfi, eins og við hin. Biðja til Guðs. Ekki okkar aumingjanna.


http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/10/08/ef_thid_viljid_strid_tha_faid_thid_strid/

Skrifað 8.10.2009 kl. 16:50 af þór

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.10.2009

Spangól


In the spring the full moon shines for the warrior who has lost his way.

Coyote is the spirit that leads back to life,
if he follows the coyote when the moon is full,
the warrior will see the path once more...

úr N-Amerískri indíána sögu





Skrifað 6.10.2009 kl. 23:09 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.10.2009

Alvöru hugvekja

Að mínu mati er þetta ein besta predikun allra tíma. Og ekki veitir af að heyra eitthvað annað en lygi og neikvæðni nú til dags. Okkur skortir uppörvun, sannleika og kærleika. Ekki hroka og ótta.
Ég er ekkert alltaf að gera það sem ég á að vera gera hér í þessu lífi, og hef gert margt ljótt og rangt. En ég trúi því, að allir geti breyst til betri vegar, ef þeir bara læra að lækka aðeins í eigin hugsunum, til að byrja með. Það er fyrsta skrefið. Það er alltof mikill hávaði inni í okkar eigin höfði nú til dags.

Og besta leiðin til þess, að heyra ekki ruglið í sjálfum sér, er að hlusta á aðra, segja sannleikann.
Og ef bara fyrsti hluti þessarar hugvekju, hreyfir ekki við okkur andlega eða tilfinningalega, þá veit ég ekki hvað þarf að gerast hér til þess að við vöknum andlega.


Skrifað 6.10.2009 kl. 17:09 af þór

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.10.2009

Stundarkorn með sanníslenskri menningu

Hérna eru tvær ferskeytlur sem ég las fyrir nokkrum árum í íslenska tímaritinu Heima er best (engin önnur þjóð en við les blöð sem birta ferskeytlur sem fólk sendir inn, hehehe):

Lifa í sátt við alla átt,
aldrei þrátta um gjöldin.
Talaðu fátt en hygðu hátt,
heiðraðu máttarvöldin.

Hættu þér ekki á hálan ís,
hygðu að ráðum mínum.
Leitaðu aldrei eftir flís
í auga á bróður þínum.

Þegar ég las þær þarna um árið þá ákvað ég að skrifa þær niður við hið sama (þrátt fyrir þreytu), og sé sko ekki eftir því - enda er svona einfaldleiki akkúrat málið, ef maður getur munað eftir honum það er að segja, og haldið í hann. Ég fann að ég þurfti á þessu að halda og vildi fara eftir þessum ráðleggingum þó að það væri/yrði erfitt. Þegar þetta var þá var ég líka á fullu að skrifa niður flotta hluti úr Sálmunum til þess að búa til lítil hugleiðsluspjöld handa mér og öðrum. Áðan var ég svo að draga fram öskjuna sem inniheldur alla miðana með sálmabrotunum til þess að geta hafist handa við að útbúa svona hugleiðsluspjöld á ný og efst í henni voru ferskeytlurnar tvær. Þær eru svo flottar og rosalega góðar áminningar um það sem máli skiptir (eða mér finnst það, læt öðrum eftir að ákveða fyrir sig)

Skrifað 6.10.2009 kl. 13:05 af Bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.10.2009

Öld reiðinnar....


DailyMail: The rage explosion

Þessu hef ég einmitt tekið eftir, jafnvel hinar hæglátustu konur eru að breytast í gribbur ;)

Ég hef alltaf verið fljót til að stökkva uppá nef mér og láta tilfinningarnar bera mig ofurliði og þessvegna blinda mig, stundum útaf endu, en ég hef líka verið að reyna að vinna í þessum málum í nokkurn tíma (mörg ár) og ég veit að það er vel hægt að ná árangri. Þegar ég var úti í Englandi fyrir 15 árum síðan þá sá ég hvernig þjóðin þar bjó yfir aðdáunarverðri þolinmæði þegar kom að því að standa í löngum biðröðum og riðjast ekki framfyrir neinn, svo dæmi sé tekið, og þegar ég sá þetta hegðunarmynstur þá ákvað ég að reyna að ná því leveli, ekki bara hvað varðar biðraðirnar heldur bara allt sem getur valdið gremju, t.d ýmsar tegundir af frekju og yfirgangi. Ég gleymi mér auðvitað stundum en hef samt sem áður náð að öðlast gríðarlega sælutilfinningu við það að reyna að njóta þess bara að vera ekki sú freka eða fúla sem skemmir fyrir öllum! Það er svo gott að umbera frekar slíka hegðan...

Reyndar held ég að það sé mun erfiðara að byrja svona baráttu núna á þessum tímapunkti heldur en það var þá, jafnvel þó að fólk sé með miklu minni skapofsagen í sér heldur en ég, og vissulega eigum við stundum fyllilegan rétt á því að reiðast, en samt hvet ég fólk til þess að athuga hvort þessi undirliggjandi ferli og bylgjur í andrúmsloftinu séu farin að hafa ólíkleg áhrif á þau sjálf?

Þegar samfélagið/ríkið er að reyna að koma svona mannfjöldaupplýsingum á framfæri (í góðum og illum tilgangi) þá er um að gera að bregðast við og sýna þeim sem stjórna heimskerfunum að við höfum sjálf stjórn á líkama okkar og anda - með aðstoð æðri mátts eða hugsjóna.

Þessa dagana er allt gert til þess að láta okkur finna fyrir reiði, eðlilega í svona ástandi einsog er hér á landi og víðar í dag þá fyllist maður gremju og stundum brjálast maður yfir óréttlætinu sem geysar, en það eru líka önnur öfl útí eternum að verki og það eru þau sem bara við sjálf getum sigrast á. Annars leiða þau okkur bara í glötun og inná enn einn básinn sem þau hafa hannað til þess að halda okkur góðum og þægum (ef það er verið að auglýsa reiði þá er öruggt að þau vilja að við finnum fyrir henni)

Gangi okkur öllum vel í baráttunni því það veitir sko ekki af!

emoticon

Skrifað 5.10.2009 kl. 12:53 af B-Ló

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.10.2009

Blessun og sameining


"Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú."


Fil. 4: 6.-7.


Ég stal þessu frá feisbook vini, vonandi hjálpar það okkur inní daginn.

emoticon






Skrifað 5.10.2009 kl. 9:14 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.10.2009

Sáluhjálparatriði fyrir þá sem er alvara og vilja berjast!


Ég var að finna alveg æðislegt lítið ritningakver sem ég bjó til fyrir nokkrum árum, það er fullt af allskonar uppbyggilegum og hrífandi áminningarorðum úr bestu bók sem hugsast getur :)

Biblían er full af loforðum, dæmisögum og ráðleggingum sem allir geta hiklaust treyst á, ef þið trúið mér ekki þá getiði alltaf prufað þetta sjálf, og haft það bakvið eyrað að það sem sést ekki hér og nú mun bara birtast seinna meir þegar síst skyldi...

Kverið er ekki langt en ég byrjaði bara rétt aðeins að fara í gegnum það áðan til þess að finna nokkur sniðug og góð atriði til að setja hingað inn, og viti menn, þegar það byrjaði og ég fór að skoða Jesaja og Galatabréf og hinar bækurnar sem verða teknar hérna fyrir, þá sá ég að þessar setningar sem ég hafði valið til að setja í kverið voru einstaklega flottar og mjög nærandi fyrir andann, sem og samhengið sem þær birtast í. Þessvegna ákvað ég stundum að lengja þær aðeins (kverið er of lítið fyrir svona langa kafla einsog eru hér) og þ.a.l tek ég bara fyrir nokkrar ritningarbækur í þessum pistli og geymi hinar þangað til seinna (job, matteus, orðskviðir osfrv osfrv). Það var með aðstoð netútgáfunnar sem mér tókst að færa þetta allt fljótt og vel hingað inn. Ég náði sko bara að skoða 1/3 af þessu kveri núna í kvöld þannig að það á enn margt gott úr því eftir að koma hingað inn á næstu dögum, svona í alvöru talað þá er þetta það eina sem málið snýst um í dag - hvort sem fólk er í afneitun á því eður ei.



Jóhannes 3.3
Jesús svaraði honum (Nikódemusi): "Sannlega, sannlega segi ég þér: Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fæðist að nýju."


Jóhannes 3.17-19
Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann. Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond.



Galatabréf 5.13-26
Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum í kærleika. Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: "Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig." En ef þér bítist og etið hver annan upp, þá gætið þess, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum.
En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins. Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið. En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli.
Holdsins verk eru augljós: Frillulífi, óhreinleiki, saurlífi, skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur, öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég yður fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki.

En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki. En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum. Fyrst andinn er líf vort skulum vér lifa í andanum! Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan.

Galatabréf 6.7-10
Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera. Sá sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá sem sáir í andann, mun af andanum uppskera eilíft líf. Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp. Þess vegna skulum vér, meðan tími er til, gjöra öllum gott og einkum trúbræðrum vorum.



Jesaja 65.11-12
En þér, sem yfirgefið Drottin, sem gleymið mínu heilaga fjalli, sem setjið borð fyrir heilladísina og hellið á kryddvíni fyrir örlaganornina, yður ætla ég undir sverðið, og allir skuluð þér leggjast niður til slátrunar, af því að þér gegnduð ekki, þegar ég kallaði, og heyrðuð ekki, þegar ég talaði, heldur aðhöfðust það, sem illt var í mínum augum, og höfðuð mætur á því, sem mér mislíkaði.


Jesaja 65.13-14+16
Fyrir því segir hinn alvaldi Drottinn svo:
Sjá, þjónar mínir munu eta, en yður mun hungra, sjá, þjónar mínir munu drekka, en yður mun þyrsta, sjá, þjónar mínir munu gleðjast, en þér munuð glúpna, sjá, þjónar mínir munu fagna af hjartans gleði, en þér munuð kveina af hjartasorg og æpa af hugarkvöl.
Hver sá er óskar sér blessunar í landinu, hann óski sér blessunar í nafni hins trúfasta Guðs, og hver sem eið vinnur í landinu, hann vinni eið við hinn trúfasta Guð, af því að hinar fyrri þrautir eru þá gleymdar og af því að þær eru huldar fyrir augum mínum.



Jesaja 65.17-19+25
Sjá, ég skapa nýjan himin og nýja jörð, og hins fyrra skal ekki minnst verða, og það skal engum í hug koma.
Gleðjist og fagnið ævinlega yfir því, sem ég skapa, því sjá, ég gjöri Jerúsalem að fögnuði og fólkið í henni að gleði.
Ég vil fagna yfir Jerúsalem og gleðjast yfir fólki mínu, og eigi skal framar heyrast þar gráthljóð eða kveinstafir.
+
Úlfur og lamb munu vera saman á beit, og ljónið mun hey eta sem naut, en moldin skal vera fæða höggormsins.
Hvergi á mínu heilaga fjalli munu menn illt fremja eða skaða gjöra - segir Drottinn.



Þessaloníkubréf hið fyrra 5.15-24
Gætið þess, að enginn gjaldi neinum illt með illu, en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hver við annan og við alla aðra.
Verið ætíð glaðir. Biðjið án afláts. Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú.
Slökkvið ekki andann. Fyrirlítið ekki spádómsorð. Prófið allt, haldið því, sem gott er. En forðist allt illt, í hvaða mynd sem er.
En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar.




Munið að Guð fyrirgefur allt ef okkur er alvara með því að hætta að syndga! Þannig virkar dýrð hans og máttur!

Það getur verið skemmtilegt að kynna sér ýmislegt í sambandi við þessa eiginleika hans, þ.e.a.s dýrð hans, mátt, miskunnsemi, fegurð/fullkomnun/nákvæmni osfrv osfrv.

Kabbalafræði fyrir byrjendur eru ekki svo galin hugmynd ef þið viljið stúdera sanna speki - ath þetta er alls ekki innihaldslausa sölubullið sem Madonna stundar ;)





Skrifað 4.10.2009 kl. 23:05 af Bambalóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.10.2009

Skilaboð mín til þeirra sem reka inn trýnin á þessa síðu eru:



Munið nægjusemina

Munið fyrirgefninguna

og

Munið: enginn er fullkominn og það er ekki okkar að dæma þó að við sjáum aðra fara illa að ráði sínu (þetta er ein erfiðasta lexían sem við lærum í þessu lífi). Enginn breytir neinu í sínu lífi nema í mætti sjálfs síns - og almættisins


Biðjum af öllum mætti fyrir þeim sem eiga við mestu erfiðleikana að glíma í þessum heimi í dag, en ég held að það séu þjóðirnar í Asíu þarsem fellibyljir, flóðbylgjur og jarðskjálftar eru að verða daglegt brauð :(  

Auðvitað biðjum við líka fyrir öllum hinum sem við vitum að geta haft gott af því, enda er bænin máttur sem hægt er að treysta að gerir sitt gagn og allir þurfa á henni að halda - fyrir sig. Það er persónulega sambandið við Skaparann sem ræður því hvar við stöndum. Við eigum ekki að biðja fyrir öðrum án þess að fara í gegnum eigin veikleika og vonir með Guði.

Við erum öll sam-ábyrg í syndum okkar, en höfum þó flest viljann til þess líka að stuðla að betri heimi. Þannig er hið mannlega eðli, og andinn í brjóstum okkar allra kallar: "Abba - Faðir", mishátt að vísu þarsem athygli sem beint er að heiminum og því sem í honum er á það til að kæfa þessa litlu rödd hans niður, en Andinn mikli, Alfaðirinn, elskar okkur öll jafn mikið hvort sem við trúum því eður ei (þessa miskunn getur enginn mannlegur máttur skilið). Mismunandi birting þessa kallast "karma" eða "örlög" og þótt fólk neiti almennt séð að viðurkenna það þá sköpum við okkur þau sjálf, eða höfum gert það frammað þessu. Það er tími til kominn að sem flestir taki stjórnina í eigin hendur og reyni að gera eitthvað í málunum!

Einn daginn munum við upplifa það sem þeir verst settu eru að ganga í gegnum á jarðarkringlunni í dag, og það er kannski ekki langt í það, en þá fyrst skiljum við hvað missir hins veraldlega er. En veraldlegir hlutir mega svo sannarlega missa sín ef lífið er farið að snúast of mikið um þá - það er sáluhjálpin sem allt snýst um :)


p.s ég er einsog doktor Evil þarsem ég sit hérna fyrir framan tölvuna með svartan loðinn kött í fanginu, hahaha, ætli það geri mig ekki bara að Doktor Good? ;)


Skrifað 4.10.2009 kl. 22:21 af bambalóra

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.9.2009

Umhugsunarefni fyrir hjörðina


Jeremía, úr 2.kafla:


26Eins og þjófurinn má skammast sín, þegar hann er staðinn að verkinu, svo má Ísraels hús skammast sín: Þeir, konungar þeirra, höfðingjar þeirra, prestar þeirra og spámenn þeirra, 27segja við trédrumb: "Þú ert faðir minn!" og við stein: "Þú hefir fætt mig!"

Þeir hafa snúið við mér bakinu, en ekki andlitinu, en þegar þeir eru í nauðum staddir, þá hrópa þeir: "Rís upp og hjálpa oss!" 28En hvar eru guðir þínir, sem þú hefir gjört þér? Þeir verða að rísa upp, ef þeir geta hjálpað þér, þegar þú ert í nauðum staddur! Því að guðir þínir, Júda, eru orðnir eins margir og borgir þínar.

29Hví þráttið þér við mig? Þér hafið allir rofið trúnað við mig - segir Drottinn.

30Til einskis hefi ég slegið sonu yðar, aga þýddust þér ekki, sverð yðar tortímdi spámönnum yðar, eins og eyðandi ljón.

31Þú kynslóð, gef gaum orði Drottins! Hefi ég verið eyðimörk fyrir Ísrael eða niðdimmt land? Hví segir þá þjóð mín: "Vér erum lausir, vér munum ekki koma aftur til þín!"




Esekíel úr 36.kafla:

22Seg því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Eigi er það yðar vegna, Ísraelsmenn, að ég læt til mín taka, heldur vegna míns heilaga nafns, sem þér hafið vanhelgað meðal þjóðanna, hvar sem þér komuð. 23Og ég mun helga mitt hið mikla nafn, sem vanhelgað var meðal þjóðanna, það er þér vanhelguðuð meðal þeirra, til þess að þjóðirnar viðurkenni, að ég er Drottinn, - segir Drottinn Guð - þá er ég auglýsi heilagleik minn á yður í augsýn þeirra.

24Ég mun sækja yður til þjóðanna og saman safna yður úr öllum löndum og flytja yður inn í yðar land.

25Ég mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir, ég mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum. 26Og ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi. 27Og ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim. 28Og þér skuluð búa í landinu, sem ég gaf feðrum yðar, og þér skuluð vera mín þjóð og ég skal vera yðar Guð.

29Ég mun frelsa yður frá öllum óhreinindum yðar, og ég mun kalla á kornið og margfalda það, og ekkert hallæri mun ég láta yfir yður koma. 30Og ég mun margfalda ávöxtu trjánna og gróða vallarins, til þess að þér þurfið ekki að þola brigsl meðal heiðnu þjóðanna fyrir hallæri. 31Þá munuð þér minnast yðar vondu breytni og verka yðar, sem ekki voru góð, og yður mun bjóða við sjálfum yður sökum misgjörða yðar og viðurstyggða. 32Eigi er það yðar vegna, að ég læt til mín taka, segir Drottinn Guð, það skuluð þér vita! Blygðist og skammist yðar fyrir breytni yðar, þér Ísraelsmenn!

 

Skrifað 30.9.2009 kl. 12:44 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.9.2009

Lyklar seiðskrattans

Ótti er það sem kæfir meðvitundina, óttinn fæðir af sér sinnuleysi. Sinnuleysið stafar af skilningsskorti, en þetta er ætíð spurning um val. Val getur annaðhvort verið frelsandi eða hamlandi, það veltur á því hvaða hvöt liggur þar á bakvið. Fullkomlega ígrunduð ákvörðun er ætíð mun eftirsóknarverðari heldur en ákvörðun sem byggir á lögum, feimni eða skoðunum annars fólks. Í öðrum orðum þá eigið þið að fylgja eigin ljósi. Þú - og ekki bara hin vitsmunalega þú - veist miklu betur hvað er rétt fyrir þig heldur en eitthvað gúrú, trúarbragð, pólitíkus, kennari, fréttablað eða annarskonar fjölmiðlarödd. Lærðu að heiðra sjálfan þig, heilindi þín, allt þitt sjálf og anda þinn, hugann, tilfinningarnar og líkamann, og tjáðu þetta allt. Allt sem þú gerir, segir eða hugsar opinberar hið innra eðli og skilyrði sálar þinnar, og allra annarra. Þinn mikilvægasti vinur er innsæi þitt. Þegar við erum virk í að viðurkenna þessa blíðu rödd sem varar okkur stundum við og getur veitt okkur innblástur þrátt fyrir að lítil sé, þá munum við, hin auðmjúku en ekki hin veiku - erfa Jörðina.


Þetta er aðeins smá brot úr greininni Keys of the warlock eftir Ellis Taylor, sem verið er að þýða hér á ritstjórn hinna vakandi, í þessum skrifuðu orðum. Þessi grein er stórbrotin í meira lagi og hún verður sett hingað á síðuna þegar þýðingin er tilbúin - það er bara spurning um örfá daga í mesta lagi emoticon

Skrifað 29.9.2009 kl. 14:43 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.9.2009

Magnaður Alex Jones!!!

Lúsíferdýrkun - bóluefni - dauði - geðsjúkdómar - matur - heilsa - ríkisstjórnir 

hann tengir þetta allt saman og það er geðveikt. Hef sjaldan séð hann svona góðann.

fyrri hluti:
seinni hluti:

Skrifað 29.9.2009 kl. 11:09 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.9.2009

Blessað sjónvarp

Hinir áhugaverðu sjónvarpsþættir It´s supernatural eru allir aðgengilegir langt aftur í tímann á netinu og við hérna á vakandi mælum eindregið með því að þið tjekkið á þeim. 

Einn af þeim nýjustu er mjög svo góður fyrir okkur sem erum að spá í hvað framundan er og hvernig er best að byggja sig upp andlega. Hann heitir Satan´s secrets, við mælum mjög sterklega með honum.

Og hérna er frekar lélegt myndband af youtube en með góðum upplýsingum, fyrir þá sem halda að nútíma vísindin sem okkur eru kennd í skólanum séu eitthvað marktæk:


Skrifað 28.9.2009 kl. 15:14 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.9.2009

Veduspeki I

Hið eilífa speglast sem ljós í hreinni sál.
Í skapandi hugarheimi sem bjart ljós.
Í döprum hugarheimi sem mynd í draumi.
Í myrkum hugarheimi sem öldubrot í vatni.
(bls.46 í sömu bók og það sem á eftir fylgir...)

1.
Guð innsæis, Savitri, vakti það afl í huga, að leita sannleikans, og hann flutti eld hugsýninnar til jarðar.

2.
Fyrir atbeina þessa guðs leitum vér af öllum mætti vorum að hinu innra ljósi, í samræmi við anda hans.

3.
Látum Guð innsæis blása lífi í hugsanir vorar svo að vér getum að vild svifið til hæstu hæða og fáum tendrað voldugt ljós.

4.
Vitrir sjáendur þessa vitra guðs hafa stjórn á kenndum sínum og hugsunum. Þeir syngja guðinum Savitri dýrðlega lofsöngva, sen eru í samræmi við lögmál hans.

5.
Ég syng þína fornu söngva með lotningu. Megi ljóð mín fylgja ljóma sólar. Megi allir synir hins Eilífa hlusta, og jafnvel þeir einnig, sem eru á hæstu hæðum.

6.
Þar sem eldur andans brennur, þar, sem andblær andans bærist, þar, sem guðsvínið flæðir, þar fæðist innblásin hugsun.

7.
Vér skulum syngja hina fornu bænasöngva Savitri til dýrðar. Gerum vér það, verður oss ekkert að meini.

8.
Þegar vitur maður sest í þægilega stöðu og beinir huga sínum og vitund að hjarta sínu, þá mun hann komast fyrir máttarorð Guðs yfir straumvötn óttans.


(Launviska Vedabóka, Upanishadur, þýtt af Sören Sörenson, útg.1977)


Erindin á eftir þessum hérna (sem tekin eru í þessari röð úr öðrum hluta Svetasvatara Upanishad, bls.52-53) innihalda kennslu í yoga og eru mjög skemmtileg. Þau fylgja eftilvill síðar inná þessa síðu, eða þá eitthvað annað úr þessari frábæru bók (úr nógu er svo sannarlega að moða).

Það borgar sig mjög mikið að hugleiða veduspeki eða biblíufræði á þessum síðustu tímum. Því að þið getið verið viss um eitt: við erum að lifa hina "síðustu tíma" og framundan er mikil þrenging, og miklar árásir, bæði efnislegar og andlegar, og það er bara undir okkur sjálfum komið að byggja okkur upp og styðja þá sem standa okkur næst í þessu lífi. Og það kemur alltaf furðulega á óvart hvað almættið er okkur gjöfult þegar okkur er alvara í þessari viðleitni. Við erum öll litlir skaparar sem höfum gert þennan heim að því sem hann er, með hugsunum okkar og þrám.

Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir bæn og hugleiðslu á þessum tímum, nema kannski að framkvæma í verki vilja Guðs, en hann myndi sennilega helst af öllu vera kærleikurinn og uppbygging andans, að leita að sannleikanum um lífið og spekina - viðleitnina til þessa verðum við svo auðvitað að hefja yfir kröfur hinna illu heimskerfa sem þrengja að okkur frá öllum hliðum - sama hvað það kostar! Og þannig sigrum við hina erfiðu innri baráttu milli andans og efnisins, sem fær okkur einatt til að gera það sem við viljum ekki gera og leggur stein í götu okkar þegar við viljum breyta rétt. En já, þessi barátta er nauðsyn ef við eigum að komast í Ríki Guðs og hún er ekki eins erfið og margur ætlar. Oftast erum við sjálf bara vantrúuð og efumst um tilganginn....

Munið hvað Jesú Kristur sagði: "Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt." (Matt 11k)

 Farið vel með ykkur, ég ætla að reyna að gera það líka. Góða nótt.

Skrifað 23.9.2009 kl. 4:34 af Bambalóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.9.2009

Hin ótakmarkaða vitund

Þetta video er svolítið lengi að komast í gang en um miðbikið verður það bara æðislegt! :)





Vefsíðan í endann: http://www.infiniteawareness.com/

Skrifað 22.9.2009 kl. 15:54 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.9.2009

Spennandi speki!

Allt um Coral Castle undrið á Flórída, og þyngdar- og segulmagnsvísindin sem notuð voru til að byggja það sem og fleiri undur í gegnum söguna, sennilega bara öll forsöguleg risamannvirki sem við skiljum ekki.....:

http://www.code144.com/ 


Myndband í sex hlutum um THE SECRET OF THE UNIVERSE - fyrsti hluti af sex:



Skrifað 21.9.2009 kl. 12:20 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.9.2009

Sumir vilja ekki að við séum vakandi...

Skrifað 20.9.2009 kl. 15:36 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.9.2009

Lenon Honor

Það er ansi margt sem sækir að mannkyninu þessa dagana og mjög mikið af fólki er að vakna upp af þeim draumi að allt sé einsog það sýnist á þessari jörð. Einn af þeim sem leggur stund á að vekja og uppfræða fólk með ýmsum framandlegum upplýsingum er ungur maður að nafni Lenon Honor. Hann hefur gert nokkrar fræðslumyndir og er með youtube rás þarsem hægt er að berja þær augum:

Lenon Honor Films


p.s bráðum hyggst ég reyndar líka gera nokkur stutt myndbönd fyrir íslendinga sem verða eitthvað í þessum dúr, mig hlakkar mjög til að setja þau hérna inn og sjá hvort það koma einhver viðbrögð ;) þau verða frekar upplífgandi vona ég, því það er kominn tími til þess að þið dragið ykkur uppúr vonleysinu gott fólk og farið að hugsa um eitthvað annað en icesave - lífið er dýrmætt, sóum því ekki í að senda orku til náhirðarinnar eða skúringafólksins á þingi...emoticon

Skrifað 19.9.2009 kl. 9:52 af bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.9.2009

Flís í heilanum

Best að vísa á eina allra bestu og uppbyggilegustu vefsíðuna sem völ er á, amk á sviði mystísks hernaðar og andlegrar uppbyggingar:  Splinter in the mind.

Höfundurinn hafði eytt mörgum árum innan trúarsafnaðar nokkurs en sneri við honum baki þegar það rann upp fyrir henni ljós að verið var að hringla með innri vitund hennar og annarra safnaðarmeðlima, í þágu utanaðkomandi afla og ýmissa "guða" sem þeim var sagt að trúa á og færa fórnir til (með því að söngla í sífellu möntrur á framandi tungum) Vefsíðan hennar varð svo til í kringum bókaskrif sem hún leggur nú stund á, til þess að varpa ljósi á það sem getur gerst þegar fólk ræður ekki að fullu yfir anda sínum sjálft og hvernig má endurheimta stjórnina.

Meðal nýjustu greinanna á Splinter in the mind er þessi hérna um kleinuhringinn sem át sjálfan sig, hún fjallar semsagt aðallega um viljann, orkuna og hugann, og hvernig við getum lært að nota þessar hliðar tilveru okkar til þess að gera ótrúlega hluti og bæta heiminn - án þess að vera undir hæl einhverra sjálfskipaðra stjórnenda sem þykjast skilja heiminn og upplifanirnar í honum betur en við sjálf...

Njótið vel.

Skrifað 18.9.2009 kl. 16:19 af Bambalóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.8.2009

Upplýsingahornið

Velkomin í upplýsingahornið II.

 

Vissuð þið:

 

Að erkienglarnir 7 eru sendiboðar og eftirlitsaðilar skaparans!!

 

Þeir heita, samkvæmt eastern orthodoxy: Michael, Gabriel, Raphael, Uriel, (Selaphiel, Jegudiel, Barachiel.)

 

Samkvæmt Book of Enoch, heita þeir:

 

Það sama og fjórir fyrstu að ofan, en hinir 3: Ragúel, Zerachiel, og Renniel.


Til gamans má geta þess hér, að vottar Jehóva, segja að aðeins Guð einn, viti hvað englarnir heita í raun og veru.

 

Heimildir: Wikipedia

 


 



Skrifað 10.8.2009 kl. 18:20 af kassa

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.8.2009

Upplýsingahornið

Velkomin í upplýsingahornið.

 

Hér mun verða fjallað um ýmsa hluti og atburði úr fortíð og nútíð, annað veifið,

 sem ekki er verið að fjalla mikið um opinberlega hérlendis, eða erlendis.

 

 

 

Njótið vel.

 

 

Vissuð þið ?

 

Að fyrir mörg þúsund árum, voru hundruðir engla á jörðinni, að eignast börn með mennskum konum, og að kenna fólki að smíða vopn, konum að mála sig og mönnum efnafræði, svo eitthvað sé nefnt. Hér voru hátæknisamfélög, sem höfðu meðal annars smíðað undarlegustu faratæki, sem talið er að hafi verið knúinn áfram með útvarpsbylgjum.

Ameríski herinn hefur gert ótal til raunir með segulsvið og ein leiddi til þess að heilt herskip ásamt allri áhöfninni varð ósýnilegt með öllu!!





Engill drottins hughreystir Jesú.

 

Heimildir : Book of Enok, Joseph P Lumpkin, Biblían, bók um bermúdaþríhyrninginn (man ekki hvað hún heitir), Vígslan, Við erum aldrei ein (Margit Sandemo), svo eitthvað sé nefnt.

Skrifað 8.8.2009 kl. 16:17 af G. Greenland Halibut

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.8.2009

Varðrispur

Það er alltítt að menn finna rispur á sér og vita ei hvernig þær eru tilkomnar. Liggja sumar eftir manni endilöngum, en sumar þversum. En svo stendur á að hverjum manni fylgir ein vættur góður og kalla menn hana varðengil þess manns er hún fylgir. Nú vita menn og að hinir ilu andar sem jafna eru til ills fúsir ásækja menn líka. Þá kemur varðengill mannsins og bætir úr hinum illu rispum með því að rispa þvert yfir þær. Þessar rispur heita nú varðrispur. Þær sem langs liggja eru óheillarispur, en hinar sem þversum liggja eru heillarispur.

Þjóðsögur Jóns Árnasonar II, bls. 536.

Skrifað 8.8.2009 kl. 12:55 af bambalóra

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

30.7.2009

Friður hjartans.

Góðan daginn kæru lesendur. Ég er áhyggjufullur eins og flest allir Íslendingar í dag. Áhyggjufullur vegna "stöðunnar", sem við öll erum komin í. Hvað er þessi staða? Er hún Icesave? Eru hún öll innheimtubréfin frá hinum og þessum stofnunum á vegum íslenska ríkisins? Eru hún skuldir? Er hún spilafíkn? Er hún áfengisneysla? Er hún afleiðing syndanna? Um hvað snúast málin hér í raun og veru, þegar upp er staðið hjá þessari blessuðu þjóð? Peninga? Völd? Auðmýkt hjartans? Andleg eða veraldleg gildi? Af hverju erum við áhyggjufull? Yfir því að geta ekki staðið við það sem við lofuðum ríkinu? Þ.e.a.s. að borga reikningana okkar á réttum tíma? Snýst virkilega allt um peninga hér á þessari jörð í dag? Svarið við flestum þessum spurningum er því miður JÁ, og sem betur fer JÁ og NEI við sumum, eins og staðan er í dag. Þannig er það bara. Stóra spurningin er hins vegar þessi: Hvað erum við að gera til þess að bæta stöðuna? Svari hver fyrir sig. Staðreyndin er sú, að þegar að okkur er vegið, verða flestir reiðir, öfundsjúkir, fara að vorkenna sjálfum sér og hrópa á hefnd. Við viljum láta dæma þá sem komu OKKUR HINUM í þessa "stöðu"!!! En hvað með okkur? Hver er okkar ábyrgð? Hvað höfum við gert til þess að BÆTA "STÖÐUNA"? Innst inni þráum við ÖLL frið hjartans. En því miður hefur okkur ekki tekist að finna þann langþráða frið. Ástæðan er sú, að við höfum flest, ef ekki öll verið að leita hans á röngum stöðum. Ef ekki á barnum, þá inni í bönkunum eða bara allsstaðar annarsstaðar en á þeim eina stað, þar sem hann er að finna. Ég get lofað þessari þjóð í heild sinni þessu: Við munum ekki finna neinn frið í okkar hjörtum með því að hrópa á hefndina. Einfaldlega vegna þess að við erum ÖLL jafn "sek". Málin hérna snúast nefnilega ekki um sekt eða sakleysi. Þau snúast eingöngu um synd. Ég hef aldrei komið til Afríku, eða Suður-Ameríku. Ég hef bara séð myndir frá þessum löndum í sjónvarpinu og þar afleiðandi hef ég enga hugmynd um það, hvernig það er að þurfa að lifa þar, í ALVÖRU fátækt, eymd og hörmungum. Hingað til hefur vesturlandabúum verið hlíft við þeirri neyð. Það er ekki okkur að þakka, svo mikið er víst. Það er aðeins Guði almáttugum að þakka og engum öðrum. Við erum ÖLL syndug, hvort sem við erum bankastjórar eða skúringakellingar/kallar. Og núna er röðin "því miður" komin að OKKUR vesturlandabúum, að "borga" STÓRA REIKNINGINN. "Á ég að gæta bróður míns?" "Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum." Þetta eru einu spurningarnar og leiðbeiningar sem geta bjargað því sem bjargað verður héðan af, fyrir mannkynið í heild sinni. Allt annað er lygi. Látum ekki reita okkur til reiði sem heild. Afleiðingarnar af því eru nú þegar fram komnar. Friður hjartans fæst aðeins með því, að leita hans á réttum stöðum og með réttum athöfnum. Leyfum Guði að berjast fyrir OKKUR ÖLL. Til þess er hann hér. Fyrir okkur. Allt annað er fyrirfram töpuð barátta. Reynum að bera skikkju lífsins létt á herðunum, án þess þó að vera kærulaus. Þeir sem fara með völdin í heiminum í dag, eru í nákvæmlega sömu sporum og við "HIN, ÖLL", þ.e.a.s: Dauðlegar verur, sem þurfa að svara fyrir sínar gjörðir, þegar þau fara héðan, innan skamms....... Góðar stundir.

Skrifað 30.7.2009 kl. 17:09 af Óskar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

29.7.2009

Gleðjumst!

Gef sál þína eigi sorg á vald,
angra ekki sjálfan þig á áhyggjum.
Gleði í hjarta er mönnum lífgjafi,
gleði manns fjölgar lífdögum.
Dreif huga þínum og hresstu hjartað,
haltu harmi langt frá þér
því að hugarvíl hefur mörgum eytt,
það hefur engum hjálpað hið minnsta.
Öfund og reiði stytta ævina,
áhyggjur gera mann gamlan um aldur fram.
Þeim sem á bjart sinni og snæðir með gleði
mun verða gott af því sem hann neytir.


Já þetta er sannleikurinn, amk hluti af honum í öllu sínu veldi.

Hvort sem málið snýst um útrásarvíkinga, tryggingastofnun, dómskerfið, alþingi, vont veður eða eitthvað annað fáránlegt sem íslendingar eru að glíma við þessa dagana, þá er það ekki þess virði að þú eyðir tíma þínum í að hafa alltof miklar áhyggjur af því. Ef þér tekst að sýna nægjusemi og þakklæti í staðinn fyrir biturleik og gremju, þá mun almættið koma til móts við þig og sjá um þig, heimurinn gerir það ekki. Valdamönnum okkar og annarra er ekki treystandi, né heldur fjölmiðlum, og markmið þessarar síðu er að opna augu fólks fyrir því sem er að gerast útí eternum af völdum myrkraaflanna (áþreifanlegra og andlegra - hin fyrrnefndu þjóna þeim síðarnefndu).

Takk fyrir lesturinn að þessu sinni og komdu endilega aftur.

Skrifað 29.7.2009 kl. 20:14 af halkatla

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 17
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 6886
Samtals gestir: 1806
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 06:33:40